Það sem Þórdísi dettur í hug

Velkomin(n) a bloggid mitt

04.09.2007 13:25:05 / disaskvisa

ný síða

Komin með nýja síðu

 

www.123.is/disahv 


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 21:20:10 / disaskvisa

Bæbæ Reykjavík, Halló Akureyri

Halló halló halló

Vááááá....hvað það er búið að vera mikið að gera! Eftir vinnu á föstudaginn þá var ég komin í mitt langþráða viku frí. Strax eftir vinnu þá keyrði ég straight til Reykjavíkur og gekk það svona vel að ég náði að hitta systur mínar á Laugardagsvellinum á stór tónleikunum þar. Var samt ekki heppnari en það að þegar ég kom þá voru Nylon hópurinn að stíga á svið! Þar sem systur mínar höfðu mætt á völlinn kl. 18:30 þá var skiljanlega kominn kuldi í þær þannig að eftir að Nylon flokkurinn var búinn þá var systrum mínum orðið svo kalt að við skelltum okkur heim.

Ég var vöknuð upp úr kl. 8:30 á laugardagsmorgninum og var ekki lengi að skella mér í sturtu og svo í Húsasmiðjuna þar ég þurfti að kaupa plast og annað dót til að geta pakkað inn allri búslóðinni. Allt gekk mjög vel enda hjálpaði Brynja mér mikið þannig að um kvöldið var skellt sér niður í bæ með stóru sys, bróðir mínum og mágkonu...ég ákvað að vera driver þetta blessaða kvöld, getið ekki ímyndað ykkur hvernig það var fyrir mig að vera í kokteilpartyi þar sem ókeypis áfengi var í boði og ég sötrandi sódavatn8|ohhh well hvað gerir maður ekki fyrir systkini sín sem fara sjaldan á djammið;)

Sunnudagurinn fór í þrif, sem tók ekki langan tíma þar sem íbúðin er bara 30fm2, svo var haldið til Brynju í vöfflukaffi og afslöppun.

Mánudagurinn....eru þið ekki að grínast hvað ég var óheppinn/misheppnuð þennan dag. Brynja vakti mig kl 8 (gisti hjá henni um nóttina) ef svo skildi að flutningamennirnir myndu koma snemma til að ná í rúmið mitt sem btw ég átti eftir að kaupa plast á og pakka inn. kl. 8:15 hringdi síminn minn...þetta voru flutingamennirnir að spurja hvort þeir mættu ekki koma eftir nokkrar mínútur8| ég hélt nú ekki ég var enþá á náttbuxunum og andfúl. Ég bað þá um að koma aðeins seinna...kl.10 væri FRÁBÆRT!!! þannig að ég flýtti mér að bursta tennurnar, settu teygju í hárið, skipti um föt og hljóp niður tröppurnar (Brynja á heima á 3. hæð;). Ég var komin niður á fyrstu hæð þegar ég fattaði að mig vantaði skæri...ég hljóp aftur upp og náði í skæri og hljóp niður aftur og keyrði af stað...var búin að keyra í 1mín. þegar ég fattaði að ég var ekki með neina húslykla:^) snéri við á staðnum, keyrði heim til Brynju, hljóp upp á 3.hæð náði í lykla og niður aftur og fór í Húsasmiðjuna. Þar var þjónustan ekki upp á mikla fiska, ég náði að kaupa það sem mig vantaði loksins, smá vandræðagangur á mér þegar ég var að borga en ekkert alvarlegt en margt annað. Brunaði ég svo í íbúðina og pakkaði inn rúminu á met...MET TÍMA. var búin kl.9:30...flutningamennirnir komu svo kl. 11:30! ok...gott mál, svo var það flutningar á stóru hlutunum, ísskápur, komóga, hægindastóll og þvottavél! Bjarki hjálpaði mér alveg með það enda fékk ég hann og bílinn hans lánaðann í þetta verk. Tók ekki nema 2 1/2klst til að keyra í Sorpu í Grafavogi, Kópavoginn en þar fór ísskápurinn í pössun(viltumst smá...ekkert alvarlegt) og til Breiðholts þar sem komógan fór í pössun (Bjarki rataði ekki neitt þar) en hvað um það. Kláraði að þrífa íbúðina, skilaði lyklinum og ákvað svo skila dóti sem ég var búin að vera með í láni í 2 ár til Andreu! þar komst ég að því að henni vantaði íbúð!!! þannig að ég gaf henni símanr. hjá þeim sem ég leigði hjá og wohhhlaaaa hún fékk íbúðina:D En ohhh nei...dagurinn hjá mér var ekki búinn. Kíkti á heimabankann minn og komst ég að því að þeir væru að rukka mig um FIT-greiðslur sem bara engann veginn stóðst...arggg hvað ég varð fúl og hringdi í þá og kvartaði....nenni ekki að þylja allt upp en allt endaði vel og ég fékk endurgreitt það sem þeir tóku af mér:haha: Jæja þá er það heimferðinn. Ég og Dúna keyrðum norður á mínum bíl. Þegar við keyrðum inn á bílaplanið hjá Dúnu þá var bíll þar fyrir framan okkur sem var að hleypa út farþega...ok við bíðum í góðri fjarlægt en hvað haldið þið...stelpu $#%$&#"&:evil: bakkaði svona líka snyrtilega á bílinn minn, kom út og sagði úpps en það var dimmt og hún hafði ekki séð okkur! VIÐ VORUM MEÐ LJÓS Á BÍLNUM!!! kræst...þannig að löggan kom tók skýrslu og blablabla!

Þannig að þriðjudagurinn fór í það að fara niður á tryggingar, fara í tjónaskoðun (fæ viðgerð eftir mánuð;), aflýsa húsaleigusamningnum, taka á móti rúminu mínu, taka á móti ömmu stól, koma herberginu mínu í eitthvað þokkalegt ástand, hengja upp myndir og þvo einar 4 vélar af rúmfötum og svoleiðis dóti.

Svo núna er ég bara í afslöppun, horfa á Friends, koma Ituns dótinu í gott stand og njóta þess að vera ein heima (m&p farin í viku frí;)

 

Heyrumst seinna amigo


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 18:04:44 / disaskvisa

Hvað segist svo?

Ætli það sé ekki kominn tími til að skella inn svo sem eins og einni færslu.

Það helsta er náttúrulega það að ég fer út í lok nóvembers til Austurríkis og mun dvelja þar í eina 5-6 mánuði, komin með ráðningarsamninginn, smá launahækkun og svo ekki síst þá er ég komin með einstaklingsherbergi:haha: verð að viðurkenna að það er allltaf smá fiðringur í mallanum. Ég er búin að fá mörg og mjög mismunandi viðbrögð við þessa ákvörð mína en egal, þetta er mitt líf. Ef þið vitið um einhvern sem er að fara til Sölden endilega látið mig vita því ég hef ekki hugmynd um neinn!

Yfir í það næsta, þá gekk verslunarmannahelgin í garð og var bara hin fínasta. Skemmti mér konunglega á föstudagskvöldinu, var komin heim um kl. 5 um morguninn, var vöknuð á laugardeginum um kl. 12, þakka Jóhönnu kærlega fyrir magamixtúruna því annars hefði ég verið hand ónýt í maganum. Var svo mjög róleg á laugardagskvöldinu, var komin upp í rúm um kl. 22 og steinsvaf í eina 12 klst. svakalega gott. Fór á djammið á sunnudaginn og var komin heim um kl. 5 og var svo vakin rétt yfir kl. 11 til þess að fara í jeppa/fjölskylduferð í eina 7-8 klst.:haha: ég var mjög þreytt þegar við komun svo heim.

Þessi vika hefur farið í það að taka herbergið mitt alveg í gegn enda komin tími til, ég flutti inn í það þegar ég var 15 ára og málaði herbergið þá vínrautt. En loksins tók ég að alveg í gegn, henti hvorki meira né minna en 3 troðfullum ruslapokum enda fann maður ansi skemmtilegt dót í skápunum sem voru troðfullir af mínu dóti og Brynju sys. Við fundum t.d. 20 ára gamla hljómsveitahúfuna hennar Brynju, púsluspil (1000púslubita) og var það fullpúslað í efstuhillunni í skápnum, kassann undan tölvunnu minni sem er 6 ára gömul og margt margt fleira. Andrea ég fann töskuna þína og bækurnar sem þú lánaðir mér fyrir sautjánhundruðogsúrkál, kem með það suður í næstu viku! En já, með hjálp Brynju sys þá hentum við nánast öllu út, máluðum herbergið hvítt, ég keypti nýja kastara, fékk sófasettið hennar ömmu. Svo keypti ég mér nýja fartölvu og bíð núna bara spennt eftir því að ég fari suður og sendi  stóra rúmið mitt norður. 

Er svo búin að vera að vinna fyrir Hildi sys á Handverkssýningunni á Hrafnagili mest alla helgi. Það tekur ekki smá á að brosa allan daginn og segja sama hlutinn aftur og aftur og aftur og aftur og aftur.

En allt hefur gengið eins og í sögu og hún gaf mér meira að segja tveir ljósmyndir eftir Láru ljósmyndara, geggjaðar ljósmyndir, ég þarf bara að kaupa mér ramma og þá eru þær klárar til að fara upp á vegg. Ég ætla svo að kaupa málverk af Hildi sys til að hengja upp fyrir ofan sófann minn. 

Nenni ekki að skrifa meira. Heyrumst


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.07.2007 18:00:01 / disaskvisa

bara allt að gerast!

Jæja...frá síðustu færslu hefur margt gerst. Byrjum á Kjarnaleikunum, árlega starfsmannapartyi. Dagurinn var hrein snilld. Við stelpurnar í sölunni tókum fyrsta vískisjússinn rétt um kl.9 en svo fór ég í pásu með það þangað til um hádegið. Ekki amalegt að eyða deginum í að skemmta sér, sitja í sófa úti á útsýnispalli, fara í folf og allt á launum. Dagurinn var frábær, dance battle milli mín og Kötlu, Stinni og Hilmar í sokkabuxum og hlýrabol dansandi ballett, kántrý, flamingo, breik, við sölustelpurnar tókum lag við góðar undirtektir, sykurmolahögg, járnkallakast og ég veit ekki hvað og hvað en nóg um það.

Þá er komið að aðalfréttunum!

Eftir nokkra vikna hugleiðingu komst ég að þeirri niðurstöðu að félagsfræðin í HÍ væri ekki eitthvað sem átti við mig. Ég ætla að stefna á nám í Umhverfis skipulag á Hvanneyri eða í Noregi á næsta ári. Ég sagði upp íbúðinni fyrir sunnan og á eftir að flytja úr henni en ég geri það i lok ágúst. Þannig að ef einhverjum vantar að fá lánaðann ísskáp, diska, glös, hnífapör...hafið þá endilega samband við mig. Þannig að í vetur ætla ég að vinna, fyrst um sinn ætla ég að vinna hér á Akureyri og svooooo...í Austurríki:haha: og hvar annarsstaðar en í Sölden. Er ekki einhver til í skíðaferðalag þangað;) En já þetta er sem sé það helsta að frétta hjá mér.

Þangað til næst

Þórdís


» 12 hafa sagt sína skoðun

04.07.2007 21:25:41 / disaskvisa

Ekkert að gerast

Það er komið smá mynstur í bloggið mitt...það er nákvæmlega ekkert að gerast hjá mér! Vinnan fer minnkandi smá saman. Er að sjá fram á að þurfa ekki að vinna með skólanum fyrir áramót:haha: og þá er það í fyrsta skipti síðan í grunnskóla sem ég er ekki að vinna með skólanum.

Já....eins og ég hef sagt ekkert að gerast! Ætla að taka mér smá bloggfrí í júlí. Heyrumst í ágúst!

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 19:25:08 / disaskvisa

Ættarmót og hvíld

Það er að verða vika síðan að ég bloggaði síðast og er margt búið að gerast. Á þriðjudeginum var ég heima vegna bakverks og hafði ég afskaplega lítið að gera nema hvíla bakið og hvað er betra en að sitja í sólbaði og slaka á. Eitthvað gleymdi ég að bera á mig sólarvörn því ég varð RAUÐ á bringunni og handleggjunum eftir það sólbað.

Ég mætti í vinnuna glöð í bragði á miðvikudaginn enda fáránlega gott veður og þá er ekki slæmt að vinna úti:haha: Brúnkan á andlitinu og handleggjum jókst en sólbruninn á bringunni jókst og í lok dagsins var ég skaðbrunninn, það var hægt að elda kvöldmat á bringunni minni, kærst hvað þetta var vont. Prófið að skokka/hlaupa þegar bringann er sólbrunninn...það er vonnnnnnnntttttttttt!!!

 

Tók mér langt helgarfrí þannig ég var í fríi á föstudag, laugardag, sunnudag og í dag...ljúf líf segi ég nú bara. Helgarfríið fór í ættarmót einhversstaðar á milli Hellu og Hofsós. Keyrslan suður gekk mjög vel eða þangað til að við vorum að fara úr bænum. Meðalhraðinn hjá mér frá Rvk til Hveragerðis var 30 km/klst. Ójá...það var umferðateppa! Ættarmótið fór mjög vel fram og aðeins 3 tjöld rifnuðu og fuku um koll vegna hvassviðri.

 

Ég og Brynja brunuðum svo í bæinn snemma í gær til að versla og náði ég að eyða góðri upphæð í föt og svo skellti maður sér í afmæli á Hildi frænku þar sem boðið var upp á dýrindis grill. Við Hildur sys lögðum af stað frá Rvk um kl. 20 og vááááááá umferðin á móti. Það var samfelld bílaröð frá Mosó og að göngunum. Alveg yndislegt hvað allir ákveða að leggja af stað á sama tíma:haha:

 

Er þetta ekki bara orðið gott í bili hjá mér...Ciao


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 17:40:40 / disaskvisa

Ekki dauð ennþá

Blessuð og sæl! Ákvað að skella inn smá færslu þar sem ég hef allan heimsins tíma í dag. Fékk svona heiftarlega í bakið í vinnunni í gær með þeim afleiðingum að bakverkurinn fór versnandi eftir því sem leið á kvöldið þannig að núna er ég heima og er að reyna að ná þessu úr mér. Er núna að horfa á Animal Planet með Steve Irwin...það er fíll í nálarstungumeðferð:haha:

En hvað er búið að ske síðan síðast...Vinnan hefur gengið sinn vanagang, er að vinna 10-11 tíma á dag, annað hvort í skítakulda eða í steikjandi hita. Það er loksins farið að hægjast um í skógræktarafhendingum en í staðinn er skjólbeltaplöntuafhendingin byrjuð en vonandi fer vinnan eitthvað að minnka.

Þann 16. júni hélt ég party fyrir gamla MA bekkinn minn, ótrúlega gaman að hitta alla gamlingjana:haha: 17.júní fór að mestu leyti í svefn enda minn fyrsti frídagur í 3 vikur, svaf um nóttina eina 9klst., lagði mig seinna um daginn i 4 klst. og svo var ég komin snemma í háttinn:haha: 

 

En hvað er svo framundan...4 daga helgarfrí....ahhhhhhhhhhhhhhh, ætla að skella mér suður á ættarmót þar sem ég og Brynja ætlum að deila tjaldi og alles og svo á sunnudaginn ætlum við í verslunarleiðangur....jeyjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjj!

 

verð að viðurkenna að þetta er drepleiðinlegt blogg en hvað með það:haha:

 

Bæjó 


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 20:54:21 / disaskvisa

Busy busy busy

Ójá ég er sko upptekin manneskja...okei kannski ekki upptekin heldur er ég orðin vinnualki! Ég er búin að vera að vinna síðan annan í Hvítasunnu og ég fæ ekki frí fyrr en 17. júní!!! Enda er líka brjálað að gera hjá mér frá kl. 8 á morgnanna til kl. 18:30 en það er bara gaman, sérstaklega þegar það er svona æðislegt veður eins og búið er að vera í dag...enda er ég líka rauð eins og tómatur í framan. En þó svo að það sé mikið að gera hjá mér þá hef ég samt alltaf tíma til að gera eitthvað skemmtilegt! Á föstudaginn var ég reyndar sofnuð kl. 22 enda vissi ég að það væri langur og strangur dagur framundan hjá mér!

Ég var mætt í vinnu kl. 8 um morguninn og var það mikið að gera alveg til kl. 18 að ég fékk ca. 15 mín pásu allan daginn8| Það eina sem hélt mér gangandi yfir daginn var tilhugsuninn um kaldan bjór með Ólöfu og Jóhönnu:haha: Þannig að um kl. 21 heyrðist æðislegasta hljóð í heimi eftir erfiðan dag.....hvissssssssssssss....ahhhhhhhhhhhhhhhhhh djö var bjórinn góður...og vodkin...og eplasnafsið...og bjórinn...þetta var allt mjög gott!

Fínasta stemmning heima hjá Jóhönnu þar sem hún, ég, Ólöf, Helga Helga og svo Guðrún skemmtum okkur alveg ágætlega...held ég. Enda fékk myndavélarnar alveg að njóta sín:haha:

skelltum okkur á kaffi ak...mjög gaman!

Næsti dagur....EKKI SÁ SKEMMTILEGASTI! dettur ekki einu sinni í hug að skrifa neitt um hann nema það að stelpurnar sem ég var að vinna með mér eiga hrós skilið fyrir að hafa þolað mig fyrstu 2klst í vinnunni en eftir það þá var ég orðin hin kátasta!

Annar er ekkert að gerast. bakaði köku í gær með aðstoð Dúna og gerði líka ostasalat vegna þess að það var kökudagur í vinnunni í dag...geggjað gott! fékk reyndar að hætta kl. 4 í dag...og það er bara í fyrsta skipti í mjög langan tíma! þannig að ég skellti mér bara í klippingu.:haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 21:04:28 / disaskvisa

Lýst er eftir.......

Váááááá....hvað það er brjálað að gera hjá mér! Klukkan er núna að verða níu að kvöldi til og ég rétt hef svo orkuna í það að blogga hérna í tölvunni hennar Hildar með suðandi randaflugu í glugganum hennar og einn roðamaur trítlandi yfir tölvuskjáinn;) Sumarið er komið:haha: En já dagarnir hjá mér líða nokkurn veginn á þann hátt:

  • ég vakna kl. 6, dríf mig í ræktina, hita upp og lyfti svo (ég skal alveg viðurkenna að ég er ekkert voða spennt fyrir því að vakna í fyrra máli eftir allar upptoganir, niðurtoganir, hliðartoganir og dýfingar sem ég þurfti að gera í ræktinni í morgun og svo þurfti ég að hlaða vinnupallbílinn af 5 kg og 10kg pokum af blákorni, graskorni og fleiri korunum í vinnunni í dag...ég er þegar farin að finna fyrir góðum strengjum)
  • Er komin heim ca 07:15 en þá dríf ég mig í sturtu, slufsa í mig morgunmat og svo beint í vinnuna á rauðappalsínugula peugeotinum mínum:haha:.
  • Byrja að vinna kl. 8 eða réttara sagt um leið og ég er búin að finna vinnuhanskana mína sem ég lagði frá einhversstaðar á góðum stað:$
  • Frá 8-18 þá er hægt að finna mig að gera eitthvað af eftir farandi hlutum: 
    • sótbölvandi öllum þeim heimsins rósum sem eru með þyrnum:evil:,
    • sótbölvandi öllum þeim broddum (sól-,blóð- og sunnubroddum) þegar ég næ að bakka mínum Grænlandsrassi á þyrnanna
    • keyrandi um á Múla (pínulítið ökutæki) eins og brjálæðingur leitandi að ákveðnum stjúpu lit vegna þess að kúnninn vill fá aðeins ólíkari stjúpu liti heldur en þá sem eru akkúrat þá á sölusvæðinu og auðvitað finn ég þá liti sjaldan
    • einhversstaðar týnd inn á milli kvistanna, toppanna, reyniviðanna...eða hvað sem er til sölu hjá okkur
    • afgreiða skógarplöntur fyrir skógarbændurnar
    • hlaupandi upp og niður allt Sólskóga svæði leitandi að hinu og þessu og að sjálfsögðu finn ég hlutina aldrei fyrr en eftir 3ja leitarhringinn
  • Ég er oftast nær komin heim um kl. 18:30, fæ mér að borða og svo reynir maður að gera eitthvað...en oftast nær nenni ég engu...hef til dæmist ætlað mér að taka til í herberginu hjá mér í 2 vikur:$..oftast nær er hægt að finna mig í tv herberginu horfandi á Dr. 90210 eða Animal Planet:haha:
  • kl. 22 þá er hægt að finna mig upp í rúmi sofandi eða hálf sofandi...fer eftir því hversu þrjósk ég er að halda mér vakandi!
En svona er mitt líf þessa dagana og þrátt fyrir þreytu, strengi, aumar lappir þá elska ég þetta og vildi ekki breyta því:haha:

En svona er þetta og hérna er vinnuplanið hjá mér næstu daga

fös 8-18

lau 8-18 eða 19

sun 12-18 (er að fara á DJAMMIÐ á laug, og ég má mæta aðeins seinna:haha:)

mán 8-18 og svona verður þetta mjög líklega þangað til 16. júni en þá fæ ég einmitt minn fyrsta frídag síðan 27. maí :haha:...vá eins gott að ég verði rík eftir þetta sumar!!!

 

Garðálfurinn kveður


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.05.2007 21:27:55 / disaskvisa

Stelpan að meika það

Jæja ég náði þremur prófum allt yfir 6:haha: féll í einu með 4,5:evil: fæ námslán fljótlega

 

það eru góðar líkur á því að ég þurfi ekki að vinna fyrir áramót:haha:  sem er náttúrulega ekkert nema hoppandi gleði:)

 

Á fimmtudag straujaði ég kortið mitt fyrir einum Peugeot 206 sem keyrður er 45 þús. km. Bílnr. Er TH 287 Hellúúúúú TH...Thordís Huld:haha:

 

Ólöf og Jóhanna PILLIST HINGAÐ!!! skiptir ekki máli hvaða dag við erum að djamma svo lengi sem við djömmum:haha:

 

Heyrumst 


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 23:27:12 / disaskvisa

Single in the city...hljómar kunnulega

Sadddddddddddddddddddd...I know...sit hérna inní sveitta sjónavarpsherberginu hér heima með Brynju sys að horfa á Reality TV þar sem þátturinn Single in the city hljómar er í bakgrunni á meðan ég er að pikka hérna inn á LAUGARDAGSKVÖLDI:(  hvað er að gerast hérna...ég á svo enga vini hérna á Akureyri þessa stundina að mig langar til að grenja...annað hvort eru þeir í sauðburði einhversstaðar lengst út í buska eða eru fyrir sunnan.

En já kom norður fyrir viku í skíta skíta kulda og þar sem ég á enga vini þá hef ég ekkert að gera nema sofa! Þetta kvöld er met...klukkan er núna að verða 23:30 og ég er enþá vakandi....en með naumindum, ég er nefnilega oftast nær sofnuð fyrir kl. 22:30, ég get endalaust sofið.

En já löngu byrjuð í sumarvinnunni:haha: byrjaði á mánudeginum og þekkti gjörsamlega engann...nema Ásu að sjálfsögðu og sem betur fer þá vinnum við stundum bara tvær einar því við getum endalaust talað um Sölden (suprise suprise). Fékk frí á fimmtudaginn og er núna að taka 9 daga vinnutörn....úfff hvað maður getur stundum orðið þreyttur á að vinna svona mikið úti...maður fær bara súrefnissjokk.

Búin að gera dauðaleit ð draumabílnum mínum og svei mér þá ef ég er ekki bara búin að koma auga á hann....en við skulum samt sjá til hvort hann hentar mér:haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 23:01:36 / disaskvisa

23ja hrukkan komin í ljós

Já...ég er víst orðin 23 ára gömul;) og vil ég þakka kærlega fyrir allar afmælisóskirnar og bloggfærslurnar sem maður hefur fengið að tilefni afmæli míns:haha:

 

Verð nú að viðurkenna að margir komu mér á óvart að muna eftir afmælinu mínu:haha: En já gerði svo sem ekki mikið í dag á þessum afmælisdegi.

Var vakin rétt fyrir kl. 8 þegar síminn hringi og heyrðist þá þessi fíni Tungusíðukór þ.e.a.s. mamma, pabbi og Birnir að syngja fyrir mig. Svo þurfti ég nú bara að þrífa og læra í dag.

En að sjálfsögðu sleppir maður ekki Júróvisíón þó svo að það sé próf daginn eftir kl. 9. Þannig að Brynja, Hildur, Bjarki og Dúna söfnuðumst saman heima hjá Brynju og jöpluðum á pizzu og volgri eplaköku með ís, heitri súkkulaði og karmellusósu og ferskum ávöxtum...nammi nammi namm!

 

Fékk nokkrar afmælisgjafir.

Fékk súkkulaði, teygjur og hárspennur frá HÍ stelpunum

Örbylgjupopp og örbylgjuofn í family size frá mömmu og pabba:haha:

Bílaþurkutissjú og 5000kr. frá Brynju, Hildi, Bjarka og Eyrnaslöpu

og síðast en ekki síst fékk ég ipod hlíf og ipod aukabatterí frá henni Dúnu:)

 

Fúllt með Eika en well shit happends, verð samt að viðurkenna að ég er bara fegin að Noregur komst ekki áfram:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 19:22:50 / disaskvisa

Allt að verða búið...guð sé lof!

Ójá...loksins, loksins þá er ég meira en hálfnuð með prófin og á því núna bara eitt próf eftir og er það á föstudaginn:haha:

Get ekki beðið eftir að föstudagurinn renni upp! Síðasta prófið, maður verður búinn að bæta á sig eina hrukku, ég fer að pakka niður, þrífa íbúðina, aldrei að vita nema maður nær að skvíssa út smá tíma og skella sér í litun og plokkun...god knows I need that!!! vegna þess á laugardaginn flýgur maður í átt norðursins í glænýja Tungusíðu eða eigum við kannski að segja endurbætta Tungusíðu:haha:

Próftíð getur verið tími skemmtilegra uppgötvana, sem dæmi þá komst ég að því þegar ég var að frumlesa Efnahagslíf og þjóðfélag að þetta er bara asskoti skemmtileg fag8| það skemmtilegt að ég gæti alveg hugsað mér að læra meira um það. Próftíðin gefur manni líka góðan tíma til að skipuleggja framtíðina. Þannig að svona verður framtíðin mín

1) Klára félagsfræðina, 2 ár eftir

2) Flyt annað hvort til Þýskalands, Austurríkis eða Sviss (þarf að læra samt þýskuna aðeins fyrst:haha:, kein problem für Þórdís)

3) Fer að læra Hagfræði þar

4) Fæ vinnu hjá Samvinnuþjóðunum, EFTA eða eitthvað álíka

5) Vinn þar í nokkur ár

6) Kem heim þegar ég verð komin yfir 5ta tuginn

7) Fer að vinna sem kennari í HA eða HÍ

Verð samt að viðurkenna að þegar maður er búinn að lesa lengi þá taka dagdraumarnir völdin hjá manni! Var að lesa á bókhlöðunni í dag og asnaðist til að kveikja á Ipodinum...og hvað haldið þið? Bob Marley var þar staddur og var að synja til mín Buffalo Soldier. Þetta er svona ekta lag þar sem maður á að hlusta á í 27 stiga hita, staddur á sólarströnd, lyktin af sólarolíunni leikur um nefið, nokkrum kílóum léttari með blómakransa um hálsinn og sætt appelsínugult blóm bak við eyrað með ískalda Margarítu í annari hendinni og svo bara dansa...ahhhhhh8) sjáið þið þetta ekki fyrir ykkur.

But noooo í staðinn þá er ég í bleiku náttbuxunum mínum vegna þess að þær eru teyganlegar, japplandi á huge vínberjum sem eru með steina á stærð við litla maura, hlustandi á Eyrnaslöpu rífa dagblöðin í frumeindir:) Elska dagdrauma...létta lundina hjá manni.

 

En Fjölskyldur og fjölskyldustefna bíður manns víst, ekki getur hún beðið þar sem fimmtudagurinn er frátekinn fyrir Eurovision-party ala systur Tungus, góðan mat (valið stendur á milli kjúlla, grill eða pizzu) og í eftirrétt verður heit eplakaka og pönnukökur með súkkulaðibitum...namminamm:haha: 


» 10 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 23:37:49 / disaskvisa

Aðeins til að kítla hláturtaugarnar

Maður verður nú stundum að taka sér frí frá próflærdómi og vinnu og horfa á þetta myndband til þess að lífga upp á daginn. Alveg óendanleg fyndið!

 

http://www.youtube.com/watch?v=svEPX2GpoXY&mode=related&search=

 

http://www.youtube.com/watch?v=vdDMpx7e-0I&NR=1


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 22:59:12 / disaskvisa

Ekkert sérstakt

 Jæja þá eru tvö próf búin og eins og fyrr hefur fram komið þá gekk fráviks hegðunin vel og svo í dag þá var það aðferðafræðin. Eigum við ekki að segja að það er góður möguleiki að ég þurfi að koma fyrr suður en ég ætlaði mér;) það kæmi mér allavegana ekki á óvart ef ég hef fallið...well shit happends! Samt frekar fyndið þegar prófið var. Yfirsetu kellan var í eldri kantinum og ákvað hún greinilega að nýta tímann fyrst hún þyrfti að sitja þarna. Haldið þið ekki bara að hún hafi komið með heimilisbókhaldið sitt, hún var að fara yfir vísareikninginn sinn. Hún var með fullan poka af kvittunum og var að gá hvort að vísareikningurinn stæðist nú ekki alveg pottþétt:) Svo voru þarna nokkrir nemendur í kínverskum fræðum. Allt prófið þeirra var á kínversku og þeir þurftu að sjálfsögðu að svara á kínversku. Mig langar til að læra kínversku! Mig langar líka til að læra þýsku!

Mig sárlega vantar að komast í litun og plokkun, mig langar líka til að lita á mér hárið fyrir sumarið. Eftir að hafa lesið í kannski 6 klst. þá er ég komin með hrikalegan bakverk.

Fór strax eftir próf til Hildar, þar sem Birnir bró kom í stutta heimsókn og svo kom Brynja. Birnir fór samt fljótlega þannig að við systur horfðum á smá sjónvarp og skelltum okkur svo smá á rúntinn og svo út að labba þar sem nokkur myndbönd og myndir voru teknar. Það var yndislegt veður þannig að það var frábært að taka sér smá labbitúr, enda var líka ekta vorveður

Eyrnaslapa (komumst að þeirri niðurstöðu að Eyrnaslapi væri kona) hefur það bara fínt. Endalaust að hoppa og skoppa þegar hún fær að fara út úr búrinu. Hún er svo mikil músí mú þessi elska:haha:

En já heyrumst, ætla að fara að snemma að sofa, er að fara út að labba með systrunum í fyrramáli.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Klukkan
Dagsetning
28. janúar 2012
S�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1785 dögum